Bara fyrir þá hörðu

03.08.2007 22:09:54 / Brynkan

HOLLAND!

JÁÁÁÁÁÁ ÞETTA ER ALLT AÐ KOMAST Í GANG! VIÐ ERUM AÐ FARA TIL HOLLANDS Á HEIMSMEISTARAMÓTIÐ AÐ HORFA HÓP EINNA STERKUSTU HESTA OG KNAPA Á EINUM STAÐ HVAÐANÆVA FRÁ HNETTINUM! FYRIR UTAN ÞAÐ VERÐA ÓFÁAR SKEMMTISTUNDIR! ÞETTA VERÐUR ÓGEÐSLEGA GAMAN!

VIÐ ERUM KOMNAR MEÐ BOLINA REDDÍ OG ÞÁ ER GALLINN KOMINN! JÆJA TÍMI TIL AÐ GERA SIG TIL FYRIR KVELDIÐ. EIGIÐ GÓÐA HELGI!

 

 

 

 

BLESS 


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 22:53:27 / Brynkan

yoyoyo mofos!

yup. Brynhildur er snúin aftur.

Mig langaði bara að deila þessu myndbandi með ykkur. Gaurinn með síða hárið er þjóðverji, sem kom að kynna heimsmeistarakeppnina í Þýskalandi í þýskutímum í fyrra og kom svo aftur í heimsókn í þýsku í vetur til að spjalla.

 

Félaginn sá arna... skyldi hann hafa komið aftur til að fara aftur on the Nightlife in Reykjavík!??

njótið....

 

<object width="425" height="350"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/A7B7viP6cZs"></param><param name="wmode" value="transparent"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/A7B7viP6cZs" type="application/x-shockwave-flash" wmode="transparent" width="425" height="350"></embed></object> 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 12:28:17 / Brynkan

Dánarfregnir og Jarðarfarir.

Sunnudagur 4. Febrúar.

Líf Bloggsíðu hörðu stelpnanna er opinberlega á enda.

Jarðarför verður í kirkjunni á Fáskrúðsfirði þann 10. mars.
Þetta verður bara lítil athöfn en endilega þeir sem nærststaddir hafa verið við gerð þessarar síðu og aðal aðdáendur hennar (sem voru trúlega engir) mega koma.

Farið verður með rútu daginn áður og lagt af stað kl. 17:30. Gist verður í safnaðarheimili bæjarins og boðið uppá grillaðar pulsur í kvöldmat.
Morguninn eftir verður hressandi sundferð svo allir verði frískir, hreinir og sætir í athöfninni.

Við biðjum um einnar mínútu þögn til heiðurs Bloggsíðu Hörðu stelpnanna í Herði.
Hún verður seint gleymd og grafin. (tjahh kannski ekki grafin)


Hörðu stelpurnar kveðja að sinni en heilsa nýjum andlitum og gömlum á nýrri síðu: www.
hardarstelpur.bloggar.is
Verið velkomin.

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.01.2007 15:38:16 / Hörður

Minni á:

Árshátíð Harðar verður haldin laugardaginn 17. mars 2007. Frábær hljómsveit og skemmtiatriði, hlaðborð að hætti Vignis í Hlégarði, takið frá daginn sjáumst sem flest.(tekið beint uppúr harðarsíðunni)

ég hlakka ekkert smá til, rifjast upp fyrir mér Árshátíðin síðast, geggjuð :D

ætlum við ekki allar að koma, það er skildumæting :D;)

kv. Dóra


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.12.2006 18:03:26 / Brynkan

áætlaður hittingur milli jóla og nýárs!


Hvar, hvenær, hvernig, gera hvað ?

Stelpur mínar... tjáið ykkur ef þið viljið sjá okkar allra fallegu andlit á einum stað ;)
Er ekki stemning fyrir að hittast á Þorláksmessu ? - Eða eruði að fara í skötupartí ?




Ef við sjáumst ekki fyrir aðfangadag þá Gleðileg Jól elskurnar!:lol:



» 4 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 13:40:19 / Hörður

nú hef ég eitthvað að segja

Stelpur ég var að hugsa hvort að þið vilduð koma í bústað 18-20 des. Það verður ógeðslega skemmtilegt og ennþá skemmtilegra fyrir mig ef þið komið með. PLLLÍÍÍÍÍSSS Það er heitur pottur og þetta er voðalega kósý bústaður 8) Það er svo langt síðan ég er búin að hitta ykkur allar! Já nema Siggu;)

Svo förum við bráðum að taka inn hestana okkar, ég get ekki beðið, þá munum við hittast oftar og svona!! Get ekki beðið eftir að fá Geysi geysilega feitann inn á hús og líka Esju, nú skal tekið á því í vetur með hana ;)

Svo var ég líka svona að hugsa, því ég geri svo mikið af því þessa dagana;) , hvort við ættum ekki að hittast um jólin og ríða út í jólasnjónum, þó ég sé nú ansi hrædd um að það verði ekkert úr því, eins og svo oft áður :S Við getum reynt að redda hestum fyrir þær sem ekki eru búnar að taka inn :D

En svo er líka eitt ógeðslega skemmtilegt búið að koma í gegn hjá mér, Siggu og fjölskyldu. Við erum loksins búin að fá í gegn fullt leyfi fyrir byggingu á hesthúsinu heima, búin að fá tilboð fyrir byggingu, búin að taka tilboðinu og búin að fá tímasetningu hvenær framkvæmdirnar byrja og hversu langan tíma það tekur, þannig að loksins verður eitthvað úr þessu!!!

Já framkvæmdirnar byrja í mai-apríl og mun taka um það bil 3-4 mánuði í byggingu. við munum byrja að rífa ljóta, ógeðslega viðbjóðslega bílskúrinn sem við erum með fyrir utan hjá okkur núna í Janúar!! fjúkket!! Þá getum við farið að byggja hesthúsið. En já þetta nýja hesthús verður geggjað flott:D:D Það er 2. hæða, sambyggt húsinu okkar, bjálkahús og verður ógeðslega kósý:D:D:D Það mun vera klætt alveg eins og húsið okkar að utan en það mun sjást í bjálkana að innan :D:D:D:D Núna erum við öll að reyna að berjast um hvaða hestar verði í þessu nýja hesthúsi (Geysir mun vera þar, Sigga :klikk: ) enda eru þetta algjörar hestasvítur. Það verða svona hurðir út úr hverri stíu sem hægt er að opna að ofan þannig að þeir geti haft hausana úti þegar það er gott veður, ógeðslega krúttlegt;) þetta er 4-6 hesta hesthús þannig að við stelpurnar getum riðið kannski frá hesthúsunum okkar í Herði og heim, því það mun þá vera svefnpláss fyrir bæði hesta og menn :D:D og Ekra mun verða að sannkallaðari sveit 8) !!!

ég get ekki beðið eftir þessu því ég er að vonast til að á efri hæðinni verði mitt nýja herbergi en mamma er ekki aaaalveg sammála, vill að þetta verði vinnuherbergið sitt og kannski að maður verði að gefa eftir hehe :evil::klikk:

kv. Dóra

ps. Brynhildur fær sérstök verðlaun frá mér fyrir að halda þessari síðu uppi!! og verðlaunin eru koss á kinn:P, þú rukkar mig bara um það seinna.:haha: og ég mun núna vera virkari með þessa síðu og vona að þið hinar takið líka við ykkur;)

;);););)

» 16 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 17:39:53 / Brynkan

Desember og Jólin!

Jæja stelpur nú fer bráðum að líða að því að flestir taki inn hestana sína fyrir veturinn ;)
Ég sjálf veit ekkert hvort að ég verði með hesta inni sökum röð atvika.
Eftir missinn í sumar hefur löngunin á hestbak ekki verið næstum eins mikil enda var alltaf svo gríðarleg tilhlökkun að fara á hann Létti minn :)
En nú verða bara spennandi verkefni framundan. Að þjálfa upp þann nýja, Hressi og Loka auðvitað og svo verð ég líklega líka með Sprett. En Við mamma erum svo æstar alltaf í að fylla hesthúsið enda með helling af gæðingum sem þarf að þjálfa ;) hehe þannig það verður líklega nóg að gera. Þ.e.a.s EF að við tökum inn.

Ég fékk nýlega út úr knapamerkjaprófunum og langar að deila með ykkur "himinháu" einkunnunum sem ég fékk maður ;P Sigga stóð sig líka alveg gígantískt vel í þessu enda við algjörir massakögglar í þessu.

1. Stig, græna knapamerki: Bókleg einkunn (30%): 9,00
Verkleg einkunn (70%): 9,50
Meðaleinkunn: 9.35

2. Stig, appelsínugula knapamerki: Bókleg einkunn (30%): 9,10
Verkleg einkunn (70%): 8,54
Meðaleinkunn: 8.54

Þar hafið þið það.
Nú á dögunum skelltu Sandra og Aðalheiður sér til Danmerkur og sú ferð var víst alveg góóóóóð verslunarferð.
Um daginn fórum við líka saman á uppskeruhátíð hestamanna sem var svaka fjör.

Svo var ég að frétta um helgina að merin okkar Freyja (man ekki hvaðan hún er eða undan hverjum, upplýsingar um það koma seinna) er með tvö fyl í sér eftir að hafa farið undir Blæ frá Torfunesi í sumar.
Þess má til gamans geta að Blær frá Torfunesi er með hvorki meira né minna en 8.80 fyrir hæfileika og sköpulag 8,17 sem gerir 8.55 í aðaleinkunn og hlaut annað sæti í flokki 6 vetra og eldri.


Blær frá Torfunesi vorið 2003

Það er nú ekki all amalegt að slá tvær flugur í einu höggi, hah!;)
Vonum bara hið besta núna þar sem það er mjög sjaldgæft að merar eigi tvö folöld. Oftast eyðist annað fylið af náttúrunnar hendi en það kemur fyrir að merar eigi tvö folöld og þá gæti verið hætta á að þær lifi það ekki af. Þannig að hún þarf að vera undir mjög miklu eftirliti fram að vori núna.

En nú eru það prófin sem eru að fara með mann og á morgun byrja ég sumsé í sögu.
Vona að maður standi sig bara sem best í þessu. JEE

Svo líður brátt að jólafríi og JÓLUM og að sjálfsögðu hlakkar maður alltaf til þeirra =)

En ég bið að heilsa ykkur og vona að þið takið þátt í enn einni endurlífgun síðunnar :P
 

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.10.2006 18:56:54 / Brynkan

nooooooooooooooooooooo

Stelpur ég verð að lýsa ykkur hérmeð sem einum að verstu bloggeigendum sem ég þekki.
Ég eina sem held uppi þessari síðu.
Heyriði mér langaði að blogga smá.. ég sumsé gerðist eitthvað hármódel um helgina fyrir eina sýningu og svo kom ég heim áðan og missti mig með símann hennar Marissu. Tók örugglega fleiri en 100 myndir af mér sjálfri í egókasti að sjálfsögðu.

En það er sumsé frá því skemmstu að segja að ég hef náð einni inná netið og langaði bar að sýna ykkr. Hún er reyndar bara svona pínulítil vegna einhverra tæknilegra örðugleika.



Látið heyra í ykkur! Hlakka til að sjá þig Aðalheiðr í kvöld!;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 18:32:37 / Brynkan

Flutt

Jæjja nú er ég flutt til Marissu svona opinberlega... en ég er alls ekki komin með allt sem mig vantar þarna niður frá og verð svolítið flakkandi á milli Mosó og hlíðanna í vetur.

Afrek helgarinnar voru:
  •  Föstudag: Vann í Trippen og seldi fyrir hvorki meira né minna en 61.700 krónur takk fyrir!
    "Saumaklúbbur" hjá Marissu, horft á video, MR>ví ræðukeppni sem MR vann að sjálfsögðu ;) og fór svo heim bara með Hrefnu í eftirdragi og sýndi henni nýju íbúðina. Újée...
  • Laugardagur: Hangið heima heilan dag án þess að skrifa staf í bók, 10bíó með Aðalheiði eftir að baila á Matta og vinum hans í bíó. Fórum á Beerfest sem var mjög sérstök og mér fannst gaman að sjá hana af því að þýskukennarinn minn var einmitt að fræða okkur um Oktoberfest-hátíðina í München í seinustu viku.
    Svo kom Ármann til mín eftir bíóið, það var frekar steikt...
  • Sunnudagur, bakaði brownies, glósaði tvær bls í líffræði og skellti mér í bíó, aftur með Aðalheiði og Siggu sem hafði komið í heimsókn til mín til að fá brownies.
Stútaði svo líffræðiprófi sem ég fór í í dag! ...ahh ég elska skólann.... Árshátíðarvikan hófst í dag og á fimmtudaginn verður haldið heljarinnar ball og Magni ætlar að spila hjá okkur. Þemað í ár er held ég eitthvað svona.. "seinni heimstyrjöldin" og Cösukjallarinn(matstofa/samkundastaður MR-inga) er núna eins og neðanjarðarbyrgi. Frekar ógnvænlegt en samt sem áður mjög flott.

Bið að heilsa stelpur! Og farið nú að gera eitthvað á þessari síðu ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 23:26:08 / Brynkan

yoyo

hey næsta mánuðinn á ég sex litla sæta kettlinga!!! liggaligga lááááiiiiiiii!!!!




Kári og 5 kettlingar... :D

Látið mig vita ef ykkur langar í!

Og hey já svo erum við að selja rafmagnsgítar með magnara og einhverju sjitti á 50þús. ef einhver hefur áhuga. Látið það berast.

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 22:14:18 / Brynkan

Nerdið ég!

Stelpur ég er að lesa bókina ,,Draumalandið - sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð" til þess að notast við við skrif mín ritgerð um hræðsluáróður fyrir íslensku.
Ef þið kannist ekki við bókina er hún skrifuð af Andra Snæ Magnasyni og ef þið vitið ekki hver það er þá eruð þið kindur eða þá að þið hafið ekki lesið t.d. bókina ,,Sagan af bláa henttinum". Draumalandið hefur af minni túlkun verið svo mikið feis á ríkisstjórnina að enginn hefur getað svarað almennilega fyrir sig. En þið verðið bara að lesa sjálfar ef ykkur langar að komast að um hvað ég er að tala... ef þið vitið það ekki núþegar.

Bókin hefur selst í massavís og ég ætla að leyfa mér að segja að hún sé að slá öllum jólabókamarkaðasölum út. Eftirfarandi myndir eru til skýringar:


Andri Snær sjálfur með Söguna af bláa hnettinum í höndunum.

Hér getið þið farið á síðu Andra Snæs og lesið um hann og verk hans til þessa.

Og svo er mynd framan af bókinni, Draumalandinu!

Kvet ykkur allar og Alla til þess að lesa þessa bók þar sem hún skiptir miklu máli.

TAKK FYRIR MIIIIIG

P.S. skora á ykkur að koma með áframhaldandi málefnaleg
blogg utan ,,rammans" (ef svo má að orði komast)


(Þetta blogg er hvorki skrifað með þeim tilgangi að móðga, særa eða ásaka nokkurn mann né í þeim skilningi að fá leiðindahugmyndir um Brynhildi, Nerdið mig?)

» 6 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 19:33:52 / Hörður

myndir úr afmæli Söndru

Ég er búin að setja inn myndir frá afmælinu hennar Söndru sætu. Mér fannst geggjað gaman heima hjá Söndru og í singstar hjá Heidý en mér fannst reyndar ekkert sérstakt á Hverfis. Ég, Heidý og Sigga fórum heim með Skutlunni, eitthvað nýtt kerfi sem á að vera ódýrara og sneggra heldur en leigubíll en var hvorugt, ég var ekki ánægð með þjónustuna og lét þá alveg vita það (sagði að þetta ætti að heita snigillinn) og getið hvað, þeir voru bara með kjaft á móti :S :D:D  en þetta var nú samt soldil upplifun útaf fyrir sig að fara að með þessari rútu heim þó ég held ég geri það ekki aftur.

nokkrar myndir úr aðal-afmælinu:

þær eru undir ammæli Söndru sætu væntanlega ;)

en  bæbæ


» 13 hafa sagt sína skoðun

10.09.2006 20:50:40 / Sigga

kominn tími á blogg frá mér

ég ætlaði að fara að blogga alveg þvílíkt mikið.. fullt af kennignum frá mér og svoleiðis en Monk er að fara að byrja þannig að.... sorry ég mun fresta því einu sinni enn   :P


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.09.2006 14:07:34 / Brynkan

AFMÆLI

Hæhæ stúlkukindur! Langaði að koma inn smá bloggi hérna í tilefni af deginum í dag.

Sandra á afmæli og mig langaði að óska ÞérSandra Mjöll til hamingju með daginn ;)



Hér fylgir textinn af afmælissöngnum, og allir syngja!:

Hún á afmæl'í dag
hún á afmæl'í dag,
hún á afmæl'ún Sandra!!
Hún á afmæl'í dag!

Hún er 17 ár'í dag,
hún er 17 ár'í dag
hún er 17 ár'ún Sandra!!
Hún er 17 ár'í dag!

Þrefalt húrra!
Húrra, húrra húrraaaaa!



The Beauty is out


Smá tölfræði:
  • Samkvæmt þjóðskrá eru 14 stúlkur sem bera tvínefnið Sandra Mjöll
  • Í dag eiga 829 íslendingar afmæli og þar af eiga 8 einstaklingar að fagna 17 ára afmælisdegi sínum.
    Til hamingju afmælisbörn!

» 3 hafa sagt sína skoðun

02.09.2006 17:32:14 / Brynkan

Jæjjja

Jæja stúlkur! Nú þýðir ekki lengur að syrgja það sme liðið er.

Þrátt fyrir að Léttir hafi dáið þýðir ekki að ég hafi dáið og ég hef ákveðið að láta þetta ekki á mig fá. Slíkt getur hent hvern sem er og maður verður bara að lifa með því. Lífið hefur bara uppá alltof margar áskoranir að bjóða og krefjandi verkefni og það er allt svo spennandi og framávið.

Í kvöld ætlum við að geeera eitthvað stúlkur! Og það er allt of margt hægt að velja úr(fyrir meg allavega):

*Sálarball í Hlégarði

* Partý

* Tebó (MR)

* Familýjuboð í Hvammi

* Ljósanótt ? :S (ein góð ástæða)

* innan sviga - (Papaball (höfum nú fengið nóg af þeim))

...og svo auðvitað eru fleiri kostir en þeir þrír efstu standa efst hjá mér.

Uhh

Það nýjasta í fréttum er að ég er byrjuð að vinna í skóbúðinni Trippen sem er á Rauðarárstíg. Flott búð. Svoldið skemmtilegt að segja frá því hvernig ég fékk vinnuna þarna en Kári bró ætlaði að sýna mér þessa fínu búð. Mér líst ekkert á þetta en fann svo eina skó sem mér leist vel á og tók þá frá og svo er haldið áfram spjalli og Berglind, konan sem rekur búðina spyr mig spurninga og býður mér svo bara vinnu allt í einu. Og vinnutímarnir hentuðu mér svona frábærlega þannig að ég var bara ráðin á staðunum. Þetta er alveg frábært.

Skólinn er líka byrjaður og verð að segja að ég er að fíla málabrautina alveg í ræmur. Æðislegt allt saman. En það er svoldið skrýtið að hugsa til þess að Sigga og Sandra séu bara ekkert í skóla... puff... en hvort er meiri lúxus ? Sigga í vandræðum með að finna vinnu við rétt hæfi og Sandra alveg útkeyrð á Nordica Hotel.

Allar erum við nú samt á framabraut svo að þetta er ekket neikvætt. Hvernig er með ykkur hinar?? Aðalheiður, Dóra, Tinna og Marissa ? Jú veit að Marissa er bara í skólanum eins og venjulega og bíllinn hennar bilaði svo að það hefur verið svoldið basl fyrir hana seinustu daga.

En nóg með það. Ágústmánuður lá svolítið niðri skemmtanalega séð enda röð atburða sem á þurfti að takast. Ég ætla að skeeeeeeeemmmta mér í kveld pújá!


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Leitarbox

Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
Klukkan